Valur - Stjarnan Pepsídeild karla

Sunnudaginn 11.ágúst kl.19:15 er stórleikur í Pepsídeild karla er Stjarnan kemur í heimsókn á Hlíðarenda. Það verður mikið um að vera á Hlíðarenda en Peppi mun mæta á svæðið, það verða boltaþrautir og boðið verður upp á Pepsi og snakk. Við hvetjum alla Valsara til að mæta og styðja drengina.