Valssigling um sundin blá

Á Menningarnótt þann 24. ágúst verður farin frábær kvöldsigling með  Eldingunni um sundin blá sem endar á Viðeyjarsundi beint undir flugeldasýningunni.

 

Þessi ferð er fjáröflun fyrir mfl. kvenna í knattspyrnu og kostar kr. 4.000 fyrir fullorðna og kr. 2.000 fyrir börn 16-10 ára,  frítt fyrir 9 ára og yngri.

 

Frábær stemning á siglingu með trúbador um borð og fullt af flottum Völsurum sem að eins og allir vita er skemmtilegasta fólk í heimi.

 

Mæting um borð kl. 21.00 og þetta endar svo um kl.23.30. Seldar verða "léttar" veitingar um borð.

 

Takmarkað miðaframboð og gildir því "að fyrstur kemur fyrstur fær" miðapantanir á benonyvalur@gmail.com

 

Ekki missa af þessu, þetta verður frábær ferð fyrir alla fjölskylduna og flott stemning með hápunkti á flottustu flugeldasýningu landsins.