Skemmtilegustu leikir sumarsins

Að venju standa Fálkar fyrir skemmtilegustu leikjum sumarsins þar sem að 3 og 4 flokkur karla og kvenna hjá Val fá að spreyta sig á Vodafone vellinum í alvöru umgjörð.

Mánudaginn 26 ágúst er röðin komin að strákunum í 4 flokki, kl 17.00 leikur A liðið við Gróttu og kl 18.30 leikur B liðið við FH

Þriðjudaginn 27 ágúst fá svo stelpurnar í 3 flokki að spreyta sig, kl 17.30 leika þær við ÍBV og verður það án efa hörkuspennandi leikur.

Fálkarnir verða að sjálfsögðu á staðnum og grilla sem aldrei fyrr.

Við hvetjum alla Valsara til að fjölmenna og styðja við bakið á framtíð félagsins og njóta um leið góðrar knattspyrnu.