Rebekka Rut Skúladóttir skrifar undir nýjan samning.

Rebekka Rut Skúladóttir hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við handknattleiksdeild Vals. Rebekka er okkur valsmönnum kunn enda verið ein af máttarstólpum okkar sigursæla liðs undanfarin ár en tók sér frí seinni hluta síðasta tímabils vegna barneigna.

Við bjóðum Rebekku velkomna aftur á parketið og um leið óskum við henni til hamingju með frumburðinn.