Æfingatöflur og skráning haustönn 2013

Æfingatöflur vetrarins eru loksins að verða tilbúnar. Þjálfarar í hverjum flokk munu láta vita af breyttum æfingatímum og frá og með morgundeginum 26.ágúst verður hægt að nálgast töfluna á www.valur.is. Handbolti og körfubolti stefna á að hefja æfingar í komandi viku og verður opnað fyrir skráningar í alla flokka mánudaginn 26.ágúst. 

Fótbolti mun æfa eitthvað fram í september í núverandi flokkum en flokkaskipti verða seinnipart mánaðarins.

Valsrútan mun einnig vera í boði fyrir iðkendur Vals sem eru í 1. til 4.bekk og hefst akstur 2.september.