Valur leikur á Hafnarfjarðarmótinu

Meistaraflokkur Vals mun mæta til leiks með gjörbreytt lið frá síðasta tímabili og mun taka þátt í Hafnarfjarðarmótinu sem spilað er núna fimmtudag til laugardags.

Leikmenn sem komnir eru, Elvar Friðriksson (Hammarby), Geir Guðmundsson (Akureyri), Guðmundur Hólmar Helgason (Akureyri), Ægir Hrafn Jónsson (Fram), Júlíus Þórir Stefánsson (Grótta). Þjálfarar Ólafur Indriði Stefánsson og Ragnar Óskarsson.

Leikjaplan Vals á mótinu og spilast í Strandgötu.

Fimmtud 29. kl 18:00 Haukar - Valur

Föstudagur 30. kl 18:00 FH - Valur

Laugardagur 31. kl 14:00 Valur - Kristiansund.

Næsta mót okkar manna verðu Opna Norðlenska sem fer fram helgina 6-8. sept og munu Akureyri, Fram, Stjarnan og Valur þar mætast.