Sigur í fyrsta leik á Haukum

Sigur vannst í fyrsta leik meistaraflokks karla á Hafnarfjarðarmótinu sem haldið er þessa helgina í íþróttahúsinu við strandgötu.

Spennuleikur var þetta líkt og er þessi bræðrafélög mætast og leiddu Haukamenn í hálfleik með einu marki, svo var það stórskyttan Guðmundur Hólmar Helgason sem hlóð í skot er leiktíminn var að líða og skoraði sigurmark leiksins og sigur á Haukum í höfn. Gaman er að sjá hversu vel mannaður hópur er hjá okkur og breiddin mikil.

Markaskorarar leiksins, Guðmundur Hólmar 7, Geir 5, Orri Freyr 3, Finnur Ingi 3, Ægir Hrafn 2, Sveinn 2, Vignir 1, Elvar 1, Júlíus 1.

Næst er það FH í kvöld kl 18 og á laugardag Kristiansund kl 14 og skorum á sem flesta til að mæta og styðja okkar menn.

Hægt er að sjá mark Guðmunds Hólmars á Instagram síðu handboltans @valurhandbolti og á facebook síðu Valurhandbolti.