Stelpudagur Vals

Stelpudagur Vals verður haldin 31.ágúst frá 12:00 til 14:00. Þá munu allir kvennaflokkar Vals í knattspyrnu æfa á sama tíma og stelpurnar úr Meistaraflokk verða á svæðinu. Fálkarnir munu svo sjá um að grilla ofan í fólkið.

Æfingarnar eru opnar og við hvetjum allar stelpur sem vilja prófa fótbolta að kíkja og hafa það gaman með okkur.