Leikmannakynning í kvöld hjá handboltanum

Í kvöld miðvikudaginn 11.september verður leikmannakynning og skemmtikvöld handboltans haldið að Hlíðarenda. Herlegheitin hefjast kl.18:30 og vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að mæta enda verður þetta toppskemmtun.

Ólafur Stefánsson og Stefán Arnarson munu kynna lið sín, Sýndir verða nýir keppnisbúningar, boðið verður upp á léttar veitingar, það verður létt uppistand og síðan verður pub quis. Ekki missa af þessari frábæru skemmtun miðvikudaginn 11.september að Hlíðarenda.