Valur Reykjavíkurmeistari 2014

Meistaraflokkur Vals varð í kvöld Reykjavíkurmeistari karla í handbolta eftir sigur 28-37 á Víking í Víkinni.

í fyrsta leik mótsins varð jafntefli við IR og svo sigrar á Fram, Fjölni, Þrótti og nú siðast Víkingum

Þeta er annað mótið sem meistaraflokkur karla sigrar fyrir komandi keppnistimabil þvi um síðustu helgi unnu þeir Opna norðlenska þar sem Akureyri, Stjarnan og Fram áttust við og unnust allir þeir leikir.

Glæsileg byrjun á tímabilinu og gaman að sjá hve vel undirbúnir strákarnir eru fyrir komandi átök i Íslandsmotinu sem hefst 19.sept er við fáum Hauka í heimsókn.

Áfram Valur.