Valur Lengjubikarmeistari kvenna

Í dag varð Valur Lengjubikarmeistari kvenna í körfubolta. Valsstúlkur mættu Haukum í úrslitaleik sem fram fór í Ljónagryfjunni í Njarðvík.
Þetta var hörkuleikur en Valur alltaf með frumkvæðið og leiddi 27-14 eftir fyrsta leikfjórðung og í hálfleik var staðan 42-23. Haukastelpur komu grimmar til leiks í síðari hálfleik og söxuðu jafnt og þétt á forskot okkar. Lkatölur voru síðan 64-63 og bikarinn okkar. Til hamingju Valsstelpur.

Valur: Ragna Margrét Brynjarsdóttir 13/10 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 12, Jaleesa Butler 11/5 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 10, Þórunn Bjarnadóttir 6/6 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 5, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 4, Ragnheiður Benónísdóttir 3/4 fráköst, Margrét Ósk Einarsdóttir 0, Sara Diljá Sigurðardóttir 0, María Björnsdóttir 0, Rut Konráðsdóttir 0.