Hildur Antons endurnýjar

Þessi öflugi miðjumaður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur verið fastamaður í liði Vals undanfarin ár skrifaði undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið.

Hildur sýndi og sannaði í sumar að hún er einn alefnilegasti miðjumaður Íslands og sannarlega fagnaðarefni að hún skuli hafa skrifað undir nýjan samning við Val.

Við hlökkum til að sjá hana á vellinum næstu þrjú árin og það er vitað mál að baráttugleðin og Valshjartað verður á sýnum stað nú sem endranær.