Indriði Áki framlengir við Val

Indriði Áki Þorláksson hefur framlengt samning sinn við Val. Nýr samningur gildir út tímabilið 2016. Indriði sem varð 18 ára á árinu hefur leikið 19 leiki með meistaraflokki Vals og skorað í þeim 7 mörk. Indriði á einnig leiki með U 19 ára landsliði Íslands. Á lokahófi Vals sem haldið var um seinustu helgi var Indriði kosinn efnilegasti leikmaðurinn, sem ekki kom á óvart. Indriði er einn af þessum efnilegu ungu leikmönnum á Íslandi sem verður áhugavert að fylgjast með í framtíðinni.