Kristinn Ingi í Val

Knattspyrnufélögin Valur og Fram hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Kristins Inga Halldórssonar í Val.   Kristinn Ingi sem er 24 ára gamall gerir fjögurra ára samning við Val eða út tímabilið 2017. Kristinn Ingi hefur spilað 97 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 23 mörk, einnig á hann 6 leiki með yngri landsliðum Íslands. Kristinn Ingi er sterkur og kraftmikill leikmaður sem getur leikið allar sóknarstöður.  Knattspyrnufélagið Valur býður Kristinn Inga velkomin á Hlíðarenda og um leið þakkar félagið forráðarmönnum knattspyrnuliðs Fram fyrir faglegar viðræður á milli félaganna.