Tvöfalt föstudagskvöld í Vodafonehöllinni

Það er tvöföld hamingja á föstudagskvöld! Meistaraflokkur karla í handknattleik spilar gegn drengjunum frá Akureyri klukkan 18:00 og strax í kjölfarið mætast Valur og FH í meistaraflokk kvenna, sá leikur hefst klukkan 20:00. 

Að vanda verður grillið vel mannað og hefst sala á hinum frægu hamborgurum klukkan 17:30 og stendur alveg til klukkan 20:00.

Við hvetjum alla til að koma og styðja við bakið á okkar fólki! Áfram Valur.