Matthías Guðmundsson yfirgefur Val

Matthías Guðmundsson leikmaður Vals hefur ákveðið að yfirgefa félagið. Matti hóf ferill sinn með Val árið 1999 og hefur verið einn af lykilmönnum félagsins í mörg undanfarin ár , hann lék um 220 leiki með Val í deild og bikar.

Matti hefur nú ákveðið að takast á við nýja áskorun á sínum ferli og tekur að sér að vera spilandi  aðstoðarþjálfari hjá Haukum og tekur þar við starfi Sigurbjörns Hreiðarssonar sem nýlega tók við sem aðalþjálfari.

Knattspyrnufélagið Valur þakkar Matthíasi Guðmundssyni ánægjulega samfylgd undanfarin ár og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni .

Stjórn Knattspyrnudeildar Vals