Jóhann Már er nýr framkvæmdarstjóri Vals

Jóhann Már Helgason, 28 ára stjórnmálafræðingur  hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vals.  Jóhann Már er að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Aftureldingar.  Jóhann mun hefja störf upp úr miðjum nóvember.  Bjóðum Jóhann velkominn til starfa um leið og við óskum honum velfarnaðar í nýju og krefjandi starfi fyrir Knattspyrnufélagið Val