Halldór Hermann í Val

Halldór Hermann Jónsson hefur gert tveggja ára samning við Val eða út tímabilið 2015. Halldór sem varð samningslaus þann 16.október er 29 ára gamall. Hann er reynslumikill leikmaður sem hefur leikið 278 leiki í deild og bikar, fyrst með Fjarðarbyggð og síðan með Fram frá árinu 2008. Halldór Hermann er baráttujaxl og vinnusamur leikmaður, sem er gulls ígildi. Það er mikið ánægjuefni að Halldór hafi ákveðið að ganga til liðs við Val og bjóðum við hann hjartanlega velkominn á Hlíðarenda.