Handboltatvenna á laugardag!

Á laugardaginn fer fram Valstvenna í handboltanum þegar meistaraflokkarnir okkar eiga báðir heimaleiki í Vodafonehöllinni. Strákarnir mæta ÍBV kl. 13:30 en stelpurnar eiga stórleik gegn Stjörnunni kl. 15:30. Ekki þarf að taka fram mikilvægi þess að Valsarar mæti og styðji liðin í mikilvægum leikjum. Hér að neðan má sjá upphitunarmyndband sem tekið var fyrir æfingu hjá stelpunum. Á fésbókarsíðu Valur Handbolti á sjá viðtal við drengina.

Allir á völlinn, áfram Valur