Æfingaleikur Valur - Grindavík

Valur og Grindavík áttust við í æfingaleik í Egilshöll á sunnudag. leikurinn var jafn eftir fyrri háfleik þar sem Magnús Björgvinsson hafði komið Grindavík yfir en Hauku Páll jafnaði rétt fyrir hlé. Í síðari hálfleik tók nýliðinn Kristinn Ingi Halldórsson til sinna ráða og setti þrennu áður en Kristinn Freyr lokaði leiknum. Sannfærandi 5-1 sigur Vals staðreynd og ekki hægt að segja annað en Kristinn Ingi hafi hafið feril sinn með Val vel.