Laufey endurnýjar samning

Þessi fjölhæfi leikmaður sem spilaði nánast allar stöður á vellinum s.l sumar skrifaði fyrir helgi undir nýjan samning til þriggja ára.

Laufey kom til Vals frá Fylki 2011 og hefur síðan komið við sögu í 67 leikjum fyrir félagið.

Það er reglulega ánægjulegt að hafa tryggt sér starfskrafta þessa öfluga leikmanns til næstu þriggja ára.

Við hlökkum til að sjá hana á vellinum í sumar og næstu sumur.