Sjálfboðaliðinn

Fréttatilkynning

 

Efni: Allir sem einn - sjálfboðaliðavefur Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

 

 

 

  • 157.686 Íslendingar eru félagar í a.m.k. einu íþróttafélagi innan ÍSÍ eða um 49,3% landsmanna.
  • Um 25.000 einstaklingar eru sjálfboðaliðar í stjórnum, ráðum og nefndum innan íþróttahreyfingarinnar
  • Enn fleiri sjálfboðaliðar koma að skipulagningu á kappleikjum, mótum og foreldrastarfi. 

 

Í tilefni af Alþjóðadegi sjálfboðaliðans í dag, 5. desember 2013, vill Íþrótta- og Ólympíusamband

Íslands nota tækifærið og þakka öllum sjálfboðaliðum innan hreyfingarinnar fyrir sitt framlag í þágu

íþrótta.  

 

Starfsemi íþróttahreyfingarinnar byggist á stórum hluta á vinnu sjálfboðaliða. Fjöldi fólks hefur lagt

íþróttahreyfingunni lið með því að sitja í nefndum, ráðum eða vinnuhópum, tekið þátt í foreldrastarfi

eða aðstoðað við framkvæmd móta eða kappleikja.

 

Nýverið var tekinn í notkun sjálfboðaliðavefurinn "Allir sem einn". Megin markmiðið með vefnum er

að skapa vettvang fyrir sjálfboðaliða til þess að halda utan um sitt framlag hvort sem það er unnið í

þágu íþróttahéraða, sérsambanda, félagsliða eða ÍSÍ. Einnig er markmiðið að fá yfirsýn yfir það

fjölbreytta starf sem sjálfboðaliðar vinna innan íþróttahreyfingarinnar.

 

Við hvetjum alla til þess að fara inn á www.isi.is smella á "Allir sem einn" og skrá inn sitt

vinnuframlag. Með því móti náum við að gera störf sjálfboðaliða innan íþróttahreyfingarinnar

sýnilegri.

 

Nánari upplýsingar um vefinn gefur Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Íþrótta- og

Ólympíusambands Íslands í síma 514-4000 / 865-0710 eða á netfangið kristin@isi.is. 

  

Virðingarfyllst,

ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS

ÓLYMPÍUFJÖLSKYLDA ÍSÍ