Bikarslagur á laugardag! Valur 2 - Valur

Laugardaginn 7.desember fer fram afar athyglisverður bikarslagur í Vodafonehöllinni þegar liðs Vals 2 mætir aðaliði Vals í Coca-Cola bikarnum í handbolta.

Hér er tilvalið tækifæri að sjá gamlar kempur á velli gegn núverjandi hetjum Vals. Leikurinn hefst kl. 16:00.

Hér að neðan má sjá spádóma Valsarans og handboltasérfræðingsins Guðjóns "Gaupa" Guðmundsonar sem ræddi við Val Handbolta.

Meiri uppitun má sjá á fésbókarsíðu Vals Handbolta.

Í liði Vals 2 eru kappar eins og Hjalti Pálmarsson, Sigurður Eggertsson, Jóhann Gunnar Einarsson, Stebbi Redskin og Ómar Ómarsson. Mætum á völlinn og styðjum bæði liðin, ÁFRAM HÆRRA.