Lucas Ohlander skrifar undir hjá Val

Lucas Ohlander hefur skrifað undir 2ja ára samning við knattspyrnufélagið Val.  Lucas sem er fæddur 1993 kom til Vals á miðju síðasta keppnistímabili og spilaði 10 leiki í Pepsideildinni.  Þar á undan var hann á mála hjá Helsingborg og Brönshoj, hann á að baki 23 leiki með yngri landsliðum Svía.  Lucas er gríðarlega efnilegur leikmaður sem getur spilað allar stöður framarlega á vellinum.