Nýr leikmaður í meistaraflokk kvenna í körfubolta

Valur hefur sagt skilið við Jaleesu Butler og eftir áramót mun nýr leikmaður mæta til landsins. Leikmaðurinn sem um ræðir er  heitir Anna Martin og hefur undanfarin ár spilað með DePaul háskólanum sem er með þeim sterkari í Bandaríkjunum.

Við óskum Jaleesu að sjálfsögðu velfarnaðar á komandi árum en á sama tíma verður virkilega spennandi að sjá hvernig nýr leikmaður komi til með að standa sig. Allir á völlinn og sýnum henni Önnu hvernig Íslenskir stuðningsmenn geta verið!

Gleðilega hátíð og áfram Valur.