Ian Williamson áfram í Val

Iain Williamson hefur skrifað undir nýjan samning við Val. Iain sem er 25 ára gamall kom til Vals í febrúar 2013 og lék alla leiki í lengjubikarnum og 11 leiki í Pepsi deildinni. Iain varð fyrir meiðslum og spilaði lítið síðari hluta mótsins. Iain hefur nú náð sér fullkomlega af meislunum og mun leika með Valsmönnum á næsta tímabili.