Æfingagjöld og skráningar 2014

Það hefur verið opnað fyrir skráningar í alla flokka fyrir vorönn 2014. Þeir sem eru í knattspyrnu geta valið á milli þess að greiða fyrir æfingagjöld fyrir vor eða vor+sumar. 

Frístundastyrkur Reykjavíkurborgar mun hækka í 30.000 krónur á nýju ári og við hvetjum að sjálfsögðu alla til að nýta sér hann.

Einnig mun sú nýjung bætast við skráningarkerfið að hægt er að biðja um greiðsluseðil í heimabanka. Þá er einfaldlega hakað við greiðsluseðil þegar barnið er skráð. Það skal þó taka fram að það þarf að gera það í upphafi hverrar annar.