Getraunaleikur Vals og 66°NORÐUR



 

Laugardaginn
11 janúar hefst fjölskylduleikurinn skemmtilegi á nýjan leik eftir jólafrí .

Leikurinn er
kjörin vettfangur fyrir fjölskyldur,vini,liðsfélaga,afa og ömmur pabba og
mömmur til að hittast yfir rjúkandi kaffibolla og meðlæti á besta stað í heimi,
spjalla og taka þátt í skemmtilegum leik sem að allir geta tekið þátt í.

Þetta er
einfaldur leikur sem að krefst engar "sérþekkingar" á fótbolta eða skyggnigáfu.
Leiknar eru 10 vikur í riðlum og 4 vikur í úrslitakeppni  og kostar þáttaka aðeins 2.500 kr á
mann sem að kemur til baka í formi Dögurðar og veglegrar úrslitahátíðar.

Eins og á
síðasta ári veitir 66°NORÐUR vegleg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í báðum
deildum og er heildarverðmæti vinninga um 300 þúsund og því ljóst að það er til
mikils að vinna

Við hvetjum
alla til að mæta og kynna sér þennan skemmtilega leik n.k laugardag á milli
10-13

 Við skorum sérstaklega á eftirtalda til að
taka þátt:

Leikmenn og þjálfara allra meistarflokka félagsins,
Valkyrjur, Fálka og stjórnir félagsins