Íþróttaskóli Vals hefst 11.janúar

Íþróttaskóli Vals, ætlaður fyrir öll börn á leikskólaaldri, hefur göngu sína laugardagsmorguninn 11.janúar. Skráning hefur verið á heimasíðu, einnig er hægt að mæta og ganga frá skráningu á staðnum.
Skólinn hefst kl. 9:40 og lýkur kl 10:30. Skólinn stendur yfir í 10 skipti og er verðið aðeins 12.000 krónur
Í skólanum er börnunum skipt eftir aldri og farið í leiki sem þjálfa grófheyrfingar auk þess sem ávallt eru boltaæfingar tengdar
fótbolta, handbolta og körfubolta. Þrautabrautin vinsæla er alltaf á sínum stað.

Allir Valsarar eru hvattir til að mæta með sín börn og barnabörn og eiga góða morgunstund með sínum gullmolum.
Nánari upplýsingar á fésbókarsíðu Íþróttaskólans og itrottaskolivals@gmail.com