Ingunn Haraldsdóttir endurnýjar

Þessi öflugi og fjölhæfi 19 ára leikmaður hefur skrifað undir nýjan samning til þriggja ára.

Hún er uppalin Valsari og hluti af hinum öfluga 2 flokki sem hefur verið á miklu skriði undanfarið.

Sannarlega fagnaðarefni fyrir Val að tryggja sér starfskrafta þessa efnilega leikmanns til framtíðar.

Við hlökkum til að sjá hana á vellinum í sumar og næstu sumur í rauðu treyjunni.