Landsliðsæfingar U19 kvenna í knattspyrnu

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið 4 stúlkur úr Val á landsliðsæfingar hjá U19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Þær stúlkur sem valdar hafa verið eru; Elín Metta Jensen, Hildur Antonsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir. 

Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju og óskum þeim alls hins best.