Það er komið að heimaleik hjá mfl.karla í handbolta!

Á föstudagskvöldið er komið að fyrsta heimaleik ársins hjá strákunum í handboltanum. HK kemur í heimsókn sitjandi í neðsta sæti Olís-deildarinnar og mun selja sig dýr. Leikurinn hefst kl. 20:00 og er ykkar stuðningur mikilvægur. Eftir góðan sigur á Akureyri í síðustu umferð eru Valsmenn vonandi komnir á skrið og stefna óðfluga upp töfluna í átt að úrslitakeppni.

Styðjum okkar menn, áfram hærra!