Coca-Cola bikarinn: stórleikur gegn Haukum!
Á mánudagskvöldið fer fram stórleikur í Coca-Cola bikarnum í handbolta þegar Valsmenn fá Hauka í heimsókn. Þetta er sannkallaður stórleikur sem enginn Valsari lætur framhjá sér fara. Sé smellt á "lesa meira" má sjá upphitun frá leikmönnum Vals.
Á fésbókarsíðu Vals handbolta má einnig sjá ítarlegt viðtal við þjálfara liðsins, Óla Stefáns og Ragga Óskars þar sem þeir fara yfir spilamennsku liðsins og hvað skipti máli í undirbúningi fyrir stórleik eins og þennan.
Vodafonehöllin
Mánudagskvöld kl. 19:30
Valur - Haukar
Láttu sjá þig!