Landsliðsæfingar U19 kvenna í knattspyrnu

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið tvær stúlkur úr Val á æfingar hjá U19 liði Íslands í knattspyrnu. Þetta eru þær Ingunn Haraldsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir. Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju með árangurinn og óskum þeim góðs gengis.