A-landslið kvenna í knattspyrnu

Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari hefur valið hóp á landsliðsæfingar A kvenna í knattspyrnu sem fram fara helgina 22.-23.febrúar. Valur á að vanda fjölda leikmanna í þessum hóp og í þetta sinn voru Dóra María Lárusdóttir, Elín Metta Jensen, Hildur Antonsdóttir, Katrín Gylfadóttir, Mist Edvardsdóttir og Ólína G. Viðarsdóttir valdar. Glæsilegur árangur og ávallt gaman að sjá svona marga Valsara í A-landsliðshóp.