Rakel Loga endurnýjar samning

Rakel kom fyrst við sögu hjá Mfl Vals haustið 1996 og hefur síðan spilað 244 leiki fyrir Val og skorað í þeim 103 mörk auk þess hefur hún leikið 26 landsleiki fyrir A landsiðið auk fjölda leikja fyrir yngri landsliðin.

 

Rakel hefur undanfarin tvö tímabil átt í meiðslum sem hafa komið í veg fyrir að hún hafi getað sýnt snilli sýna á knattspyrnvellinum. En nú horfir allt í rétta átt og sannarlega fagnaðarefni fyrir Val að hafa tryggt sér starfskrafta þessa reynslubolta á komandi tímabili.

Við hlökkum mikið til að sjá "konuna með stóra Valshjartað" á völlum landsins í sumar í sínu besta formi.