Valur í úrslit Reykjavíkurmóts

 

Úrslitaleikur
Reykjavíkurmóts kvenna Valur mætir Fylki

Það verða Valur og Fylkir sem mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna og fer leikurinn fram
í Egilshöll, mánudaginn 24. febrúar. 

Heiðursgestir KRR á úrslitaleiknum verða þær Guðrún Hjartardóttir, fyrrverandi formaður
meistaraflokksráðs kvenna hjá Fylki til margra ára, og Kristbjörg Ingadóttir,
fyrrum leikmaður og meistaraflokksráðskona hjá Val.  Munu þær heilsa upp á
leikmenn fyrir leik og afhenda verðlaun að leik loknum.

Við hvetjum allt
knattspyrnuáhugafólk til þess að fjölmenna í Egilshöllina á mánudaginn og sjá
bikar fara á loft