Toppslagur í hjá stelpunum í Olís deildinni á laugardag kl. 16!

Það verður sannkallaður toppslagur hjá meistaraflokki kvenna í handbolta á laugardag kl. 16 þegar þær fara í Garðabæinn og mæta efsta liði deildarinnar, Stjörnunni. Ekki þarf að hafa mörg orð um mikilvægi þess að Valsarar nær og fjær mæti og styðji stelpurnar.
Eftir afar mikilvægan sigur á Fram á þriðjudagskvöld og bikarúslit á næsta leiti telur hvert stuðningsmannahróp í dag. Mikið álag er á liðinu enda barist um titla á tveimur vígstöðum.

Allir á völlinn, áfram VALUR

Laugardagur kl. 16
Mýrin
Stjarnan - Valur 

Skemmtilegt viðtal við þær Berglindi Hansdóttur og Sigurlaugu Rúnarsdóttur fylgir með sé smellt á "lesa meira".