Forsala hafin á undanúrslitaleik kvenna í handknattleik

Fimmtudaginn 27.febrúar n.k. munu stelpurnar okkar í handbolta spila undanúrslitaleik í bikar við Hauka.

Leikurinn hefst kl. 20:00 í Laugardalshöll.

Forsala er hafin á leikinn, allar tekjur af miðasölu sem fer fram í Vodafonehöllinni munu renna óskertar til handknattleiksdeildar Vals og viljum við hvetja Valsmenn til að nýta sér það tækifæri.

Hægt er að nálgast miða í Vodafonehöllinni eða leggja inn á reikning félagsins 0513-26-7076 kt. 670269-2569 og nálgast miðana í anddyri Laugardalshallar rétt fyrir leik á fimmtudag.

Miðaverð kr. 1.500.- senda staðfestingu á dagny@valur.is