Landsliðsmenn og konur Vals á ferð og flugi

Landsliðsþjálfara hinna ýmsu landsliða hjá KSÍ hafa valið fjölda Valsara í hópa sína. 

Ólafur Þór Guðbjörnsson hefur tilkynnt U19 ára hópinn sem mætir Finnum í tveimur æfingaleikjum ytra þann 11. og 13.mars. Í þessum hóp eigum við Valsarar 3 leikmenn. Þetta eru þær Hildur Antonsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir.

Úlfar Hinriksson hefur valið Eydísi Arnarsdóttur í æfingahóp hjá U16 ára landsliði Íslands í knattspyrnu.

Að lokum þá hefur Eyjólfur Sverrisson boðað Sigurð Egil Lárusson á æfingu hjá U21 árs landsliðinu vegna leiks Íslands og Kazakstan ytra þann 5.mars.

Frábært að sjá svona marga Valsara gera það gott í knattspyrnunni og við óskum þeim auðvitað góðs gengis.