Hugrún Arna skrifar undir samning

Hugrún Arna er uppalin Valsari og sannarlega gleðiefni að þessi efnilegi leikmaður hafi skrifað undir 3 ára samning við félagið.

Hún hefur átt í erfiðum meiðslum s.l tvö ár en er nú komin á beinu brautina og full ástæða til að gleðjast yfir því.

Við hlökkum til að að sjá Hugrúnu á völlum landsins komandi ár í rauðu treyjunni.