U18 ára landslið karla í handknattleik

Valsmenn eiga einn fulltrúa í U18 ára liði Íslands í handknattleik karla sem mætir Dönum í Danmörku dagana 4.-6.apríl. Leiknir verða þrír leikir og fulltrúi Vals í þessum leikjum er Sturla Magnússon. Við óskum honum að sjálfsögðu góðs gengis.