Dóra María Lárusdóttir komin með 100 landsleiki

Hin magnaða Dóra María Lárusdóttir náði þeim frábæra áfanga að spila landsleik númer 100 þegar Íslensku stelpurnar sigruðu þær Sænsku 2-1 á Algarve í gær. Dóra María bar fyrirliðabandið í leiknum og varð um leið yngsti leikmaður í knattspyrnusögu Íslands til að ná 100 leikjum fyrir þjóð sína.

 

Frábær árangur hjá þessum frábæra Valsara! Við óskum Dóru María innilega til hamingju með leikina 100 og vonum að þeir verði mun fleiri í framtíðinni, bæði fyrir Íslands og Val.