Rúta í Stykkishólm

Stelpurnar í körfubolta eiga stórleik í kvöld þegar þær mæta Snæfell í oddaleik um sæti í úrslitum Dominosdeildar kvenna í körfuknattleik. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og Valur mun bjóða uppá rútuferð frá Hlíðarenda fyrir allt að 40 manns. Mæting er klukkan 16:10 og rútan fer rúmlega 20 mínútur yfir fjögur. Fyrstir koma fyrstir fá og eins og áður segir eru 40 sæti laus.