Tampa Bay Rowdies - Valur

Strákarnir í meistaraflokk í knattspyrnu eru þessa dagana staddir í USA og þann 31.mars leika þeir æfingaleik gegn liði Tampa Bay Rowdies.  Bæði lið eru á fullu í undirbúning fyrir tímabilið og hingað til hafa Rowdies spilað 4 æfingaleiki þar sem þeir hafa sigrað 3 og gert eitt jafntefli.

Þetta lið er kannski ekki það allra frægasta í Bandaríkjunum en síðast þegar þeir mættu liði frá Evrópu sigruðu þeir lið Bolton Wanderers 1-0 þann 14.apríl 2011 þannig að eitthvað hljóta þeir að kunna fyrir sér.

Við óskum drengjunum góðs gengis og það er vonandi að við getum fært ykkur fleiri fréttir af þeim á næstu dögum.