2.flokkur karla Deildar og bikarmeistarar

Annar flokkur Vals í handknattleik karla náðu þeim frábæra árangri að sigra bæði deild og bikar á dögunum. Þessir efnilegustrákar hafa spilað gríðarlega vel í vetur undir öflugri handleiðslu Ragga, Heimis og Maks ásamt því að Óli Stef hefur tekið virkan þátt í þessu ævintýri.

Nú er bara að vona að drengirnir haldi dampi og gefi ekkert eftir í sjálfri úrslitakeppninni! Þetta sýnir okkur hversu gríðarlega björt framtíð félagsins er þegar kemur að handknattleik karla og verður gaman að sjá þessa stráka á fjölum Vodafonehallarinnar um ókomin ár.

Til hamingju strákar og áfram Valur

 

Valur 2.fl.kk deild og bikar.jpg