Vormót Vals 17-18 maí

Vormót Vals í körfubolta í fer fram í Vodafonehöll 17 - 18 maí næstkomandi.

Mótið er fyrir drengi og stúlkur 13 ára og yngri. (7. Flokkur og niður).

Leiktími er 2x12 mín og tími ekki stoppaður. Fjórir leikmenn inn á nema í 11 ára og eldri sem spila einnig á stórar körfur. Öll lið fá a.m.k þrjá leiki.

Skráning fer fram á valur@valur.is stendur yfir til mánudag 12. maí.

Verð á hvern leikmann er 2.000 kr. Allir fá óvæntan glaðning í mótslok