Úrslit Olísdeildar kvenna - leikur 1

Miðvikudaginn 7.maí klukkan 19:45 hefst einvígi Vals og Stjörnunnar í Olísdeild kvenna í handknattleik. Það lið sem fyrr sigrar þrjá leiki mun standa uppi sem sigurvegari og þar með Íslandsmeistari í handknattleik kvenna!

Þessi lið hafa skipt með sér bikurum í vetur en Stjarnan varð deildarmeistari á meðan Valsstúlkur urðu bikarmeistarar.

Leikur eitt fer fram í Mýrinni í Garðabæ og við hvetjum auðvitað alla Valsara til að mæta á svæðið og öskra stelpurnar áfram.