Darri Sigþórsson til FCK

Darra Sigþórssyni hefur verið boðið til æfinga hjá Danska stórveldinu FC Köbenhavn.  Darri mun halda út í lok maí og æfa með FCK frá 26.-30.maí.

FCK er einn af allra sterkustu klúbbum á Norðurlöndum og hafa lið á borð við Manchester United, Celtic, Benfica og Juventus mætt til köben og tapað stigum í riðlakeppni meistaradeildarinnar.

Við óskum Darra auðvitað góðs gengis og efumst ekki um að hann muni standa sig gríðarlega vel hjá félaginu.