Afsökunarbeiðni til Florentinu Stanciu

Þau mistök áttu sér stað af hendi Valsara, í pistli á heimasíðu Vals, að markvörður Stjörnunnar í handbolta, Florentina Stanciu, var kölluð trúður. Eru þessi skrif ekki í anda þeirrar háttvísi sem Knattspyrnufélagið Valur vill hafa að leiðarljósi. Florentina er því hér með beðin innilegrar afsökunar á þessum mistökum.